Við leigjum út húsnæði til vinnandi ferðamanna,
viðskiptafólks og erlendra nemenda allstaðar að úr heiminum. Allt
okkar húsnæði er staðsett í Arsenal, Finsbury Park, Higbury, Manor
House, Vauxhall, London (Piccadilly Line, Victoria Line, British
Rail), í zone 2 og 3, í 10 til 15 mínútna fjarlægð frá miðborg London.
Öll herbergin eru nýlega uppgerð, hafa ísskáp og sjónvarp með fjölmörgum
sjónvarpsstöðvum. Einnig er sími til úthringinga í hverju herbergi
sem eru, tilvaldir fyrir tölvutengingu.
Á þessari vefsíðu veitum við ekki einungis hjálp til að finna almennilegt
húsnæði heldur munum við einnig gefa ýmis ráð til dæmis um hvernig
á að fá vinnu og hvar. Okkar markmið er að bjóða hágæða húsnæði
á verði sem þú hefur ráð á.
Upplýsingar um húsnæði í London
Við sérhæfum okkur í leigu á húsnæði handa vinnandi ferðamönnum,
viðskiptafólki og erlendu námsfólki alls staðar að úr heiminum,
frá einni viku til sex mánaða. Við erum með eins-, tveggja- og þriggjamanna
herbergi.
Herbergin eru öll staðsett í norður London nálægt neðanjarðalestarstöð,
lestarstöð og/eða strætisvagnastoppustöð. Nálægt Arsenal neðanjarðarstöðinni
er hinn þekkti Arsenal Stadium sem að fótboltaunnendur ættu að kannast
við. Einnig eru þar í hverfinu spennandi skemmtistaðir og pöbbar.
Öll herbergin eru hreinleg, nýlega innréttuð og upphituð. Í hverju
herbergi er sjónvarpstæki og ísskápur. Í öllum herbergjum er sími
sem hægt er að taka á móti símtölum í og hringja úr. Það kemur sér
vel þegar leita á að vinnu og eða tengja tölvu.
Það myndast mjög skemmtilegt andrúmsloft þegar fólk allstaðar að
úr heiminum búa saman.
Leigjendur hafa eigin lykla, það eru engar reglur um útivistartíma
og engir foreldrar. Hægt er að fá aðgang að faxtæki og netfangi.
Einnig höfum við upplýsingar um atvinnumiðlanir. Leigan innifelur
allt til almennrar notkunar (nema síma) eins og aðstöðu til að strauja,
hægt er að fá þvott þveginn gegn sanngjarnri greiðslu og gestir
hafa aðgang að eldhúsi.
Við vonum að þið ákveðið að slá til og gista hjá Gainsborough Studious
meðan þið dveljið í London. Endilega sendið okkur e-mail eða hringið
í okkur á milli 10.00 og 18.00 (GMT) í síma 0044- 208-802-6646
alla daga vikunnar og spyrjið um Dino.
Okkar markmið er að bjóða upp á gistingu, sem innfelur alla venjulega
þjónustu, skemmtun og hjálp við að finna vinnu, á miklu lægra verði
en þekkist á öðrum gististöðum fyrir ungt fólk í London. Við biðjum
ykkur ekki að greiða neitt við pöntun né heldur háar fyrirframgreiðslur.
Við biðjum einungis um greiðslukortanúmer við bókun til að tryggja
pöntunina.
Til að tryggja öryggi gesta okkar:
Hafa öll herbergi reykskynjara
Eru reykingar bannaðar
Í öllum eldhúsunum eru:
Hitaskynjari
Slökkvitæki
Eldvarnarteppi
Gaseldavélar, sem eru reglulega athugaðir vegna öryggis
Allar hurðar hafa öryggislykla
Öll vandamál eru leyst innan klukkutíma
Við fyrstu heimsókn, fá gestir eftirfarandi ókeypis: (when you
stay with us for the first time)
Tvo klukkutíma af internettengingu til að láta fjölskyldu og vini
vita nýjustu fréttir, auk þess sem tíu næstu klukkutímar af internettengingu
eru á hálfvirði.
Ótakmarkaðan tíma til að nota tölvu til að búa til ferilsskrá og
umsóknarbréf.
Tækifæri til að senda 15 föx til atvinnumiðlana og/eða fyrirtækja
í London.
Tækifæri til að senda 2 föx utanlands, ef foreldrar eða vinir hafa
ekki aðgang að interneti (til að láta vita af sér).
Drykk- óáfengan eða áfengan.
Bókun & umsóknareyðublað
Við verðum glöð að heyra frá ykkur, ef þið hafið áhuga á að dvelja
hjá Studios92.com. Öll herbergin hjá okkur eru nýlega uppgerð og
með því tryggjum við að gestir okkar njóti dvalarinnar. Sendið okkur
eftirfarandi upplýsingar í gegnum tölvupóst. Við munum reyna að
svara öllum bréfum innan sólarhrings. Við munum gera okkar besta
í að svara öllum spurningum sem þið gætuð haft. Eftir að þið gefið
upp eftirfarandi upplýsingar verðið þið sett á biðlista sem eykur
líkurnar, svo um munar, á dvöl hjá okkur. Það verður farið með allar
upplýsingar sem trúnaðarmál.
1. Titill (herra, frú, fröken)...Fullt nafn...
2. Aldur og starfsheiti...
3. Fjöldi gesta og aldur...
4. Þjóðerni og fæðingarstaður...
5. Hefur þú komið áður til London?
6. Lengd dvalar óskað...
7. Tegund húsnæðis: fyrir einn, tvo(hjónarúm eða tvö samstæð rúm),þrjá...einsmannaíbúð...
8. Dagsetning komu (dagur/mánuður/ár) og tími komu til London (24
tímar sólarhrings)...
9. Símanúmer (munið landsnúmerið)...
10. Faxnúmer og netfang...
11. Heimilisfang...
12. Tilgangur ferðar (skemmtun, vinna, nám)...
13. Hversu miklu hefur þú ráð á að eyða í húsnæði (á viku fyrir
manninn í pundum)?
14. Hvaða leitarvél á netinu notaðirðu til að finna okkur (lykilorð)?
15. Reykirðu?
16. Spurningar:
Ef listinn hér fyrir ofan var fylltur út rétt og skilmerkilega
hjálpar það okkur við að kanna hvað viðskiptavinir okkar vilja,
spara peninga til að markaðssetningar á netinu- peninga sem hjálpa
okkur til að halda verðinu niðri. Listinn hjálpar okkur einnig til
að svara fyrirspurnum og pöntunum fyrr. Sendið okkur e-mail...það
er opið hjá okkur alla daga vikunnar og ekki gleyma að mæla með
okkur við vini og kunningja.
Leiga innifelur efirfarandi þjónustu
1. Í öllum herbergjum eru símar til að taka á móti símtölum í án
gjalds. Einnig er hægt að hringja úr símanum með notkun símkorta
og internettengja tölvur.
2. Þjónusta til að taka á móti föxum ókeypis og einnig er hægt að
senda föx gegn lágu gjaldi. Við geymum einnig allan póst upp til
sex mánuða eftir að gestir fara(ef eftir því er óskað).
3. E-mail (ókeypis móttaka pósts )
4. Eigin lyklar og engar útivistarreglur.
5. Hrein, nýlega uppgerð herbergi með húsgögnum.
6. Meðmælabréf fyrir banka og fyrirtæki (frítt) ásamt hjálp við
ferilsskrár (CV).
7. Upplýsingartafla með störfum í boði.
8. Hrein rúmföt.
9. Sjónvarp með ótal sjónvarpsstöðvum (flest herbergi hafa Sky TV).
10. Heitar sturtur allan sólarhringinn.
11. Upphitun íbúða (18.00-23.30 & 05.00-10.00).
12. Notkun á eldhúsi allan sólarhringinn.
13. Þvotta (6£) og hreinsunarþjónusta (Verð fer eftir flík).
14. Reikningar: rafmagn, hiti, gas, vatn og skattur til borgarinnar.
15. Þjónustugjald.
16. Félagsaðild.
17. Hjálp við skattaafslátt.
18. Ráðgjöf um vegabréfsáritun.
19. Aðstaða til að strauja.
20. Handklæði (ókeypis) og ókeypis kort af svæðinu.
21. Ókeypis internetaðgangur um helgar.
22. Hjálp við að opna bankareikning.
Fyrir utan alla þá frábæru þjónustu sem við bjóðum hér að ofan
komum við einnig og sækjum gesti okkar á Arsenal neðanjarðarstöðina.
Þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af þungum og miklum farangri.
Það er nauðsynlegt að hafa samband við okkur frá flugvellinum, til
að við getum ákvarðað komu ykkar á Arsenal stöðina. Þá getum við
skipulagt það að einhver bíði eftir ykkur við komuna. Ekki slæmt!
Við erum 100% örugg um að þið verðið svo ánægð við komuna að þið
mælið með okkur við alla vini ykkar, sum herbergin okkar eru svo
falleg að þau gætu verið herbergi á þriggja stjörnu hóteli!
|